Heima er best 🫶
Við byggðum Heima til að hjálpa fjölskyldum að hjálpast að á heimilinu
Heima er íslenskt sprotafyrirtæki með það markmið að gera heimilislífið einfaldara, skemmtilegra og jafnara.
Flestar fjölskyldur vilja hafa jafnvægi í verkaskiptingunni sinni. En án sameiginlegs kerfis á skipulagið, ábyrgin og eftirfylgnin það til að hvíla helst á herðum einnar og sömu manneskjunnar.
Skóladagatalið. Innkaupin. Þvotturinn. Daglegu rútínurnar. Hlutirnir sem þufa að gerast áður en nokkur tekur eftir því.
Þessi ósýnilega vinna hefur raunverulegan kostnað. Hún býr til stress, spennu og neikvæðar tilfinningar, líka í fjölskyldum þar sem allir vilja hjálpa til.
Heima var byggt til þess að breyta því.
Hvað gerir Heima
Heima gefur fjölskyldum sameiginlegt verkfæri til að reka fjölskyldu og heimili.
Verkefni, rútínur, listar og áminningar verða sýnilegar, svo allir geti séð hvað þarf að gera, hver er ábyrgur og hvað hefur þegar verið gert.
Fjölskyldur nota Heima til að deila heimilisverkum, útbúa rútínur, halda utan um innkaup og tékklista, safna stigum, sækja verðlaun og búa til jákvæðar venjur sem endast.
Hvernig er Heima öðruvísi?
Heima er ekki byggt fyrir eina manneskju til þess að verða betri í að bera ábyrgð á stærstum hluta heimilishaldsins einn.
Það var byggt til þess að virkja alla fjölskylduna til að taka þátt.
Það á enginn að þurfa að verkefnastýra öllu heimilishaldinu á eigin spítur. Heima gefur fjölskyldum sameiginlegt verkfæri til að sjá verkefnin, ræða þau og skipta ábyrgðinni jafnar á milli sín.
Því markmiðið er ekki bara að hafa meira skipulag heima hjá sér.
Heldur að heima sé staður þar sem fólk tekur eftir hlutunum, tekur virkan þátt og fylgir eftir því sem þau taka að sér.
Stofnendur Heima

Heima var stofnað af teymi sem hefur trú á því að tæknin geti hjálpað fjölskyldum að búa til betri rútínur, deila ábyrgðinni betur og finna aukið jafnvægi heima hjá sér.
Við höfum ólíkan bakgrunn í hugbúnaðarþróun, hönnun, viðskiptum og jafnréttismálum, en við erum öll að vinna að sama markmiði: Að gera daglegt heimilislíf einfaldara, jafnara og skemmtilegra.
Heima was founded by a team that believes technology can help families build better routines, share responsibility and create more balance at home.
Velkomin í Heima
Jafnvægi innan fjölskyldunnar er ekki eitthvað sem nóg er að trúa á, það er eitthvað sem þarf að vinna markvisst að.
Heima veitir fjölskyldum öflugt kerfi til að gera það einfaldara í daglegu lífi.